Allegri orðaður við Man Utd - Modric að framlengja við Real Madrid
banner
   fös 03. maí 2024 12:30
Elvar Geir Magnússon
Kemur ekki til greina hjá Leverkusen að selja sinn helsta demant
Wirtz er með rosalegan sköpunarmátt.
Wirtz er með rosalegan sköpunarmátt.
Mynd: Getty Images
Florian Wirtz á 21 árs afmæli í dag en þessi magnaði fótboltamaður hefur verið stórkostlegur með þýska liðinu Bayer Leverkusen á þessu tímabili, hann hefur skorað átján mörk og átt nítján stoðsendingar.

Wirtz hefur verið lykilmaður hjá Leverkusen sem hefur tryggt sér þýska meistaratitilinn auk þess sem liðið er einum leik frá því að komast í úrslitaleik Evrópudeildarinnar og mun leika gegn Kaiserslautern í þýska bikarúrslitaleiknum seinna í þessum mánuði.

Þessi hæfileikaríki leikmaður spilar sem sóknarmiðjumaður en getur einnig leikið á vængjunum. Hann hefur feikilegan leikskilning.

Ferill hans hefur ekki bara verið dans á rósum því hann sleit krossband árið 2022 en kom hrikalega öflugur til baka. Hann hefur þegar leikið sextán landsleiki fyrir Þýskaland og verður fróðlegt að fylgjast með honum á EM í sumar.

Íþróttafréttamaðurinn Fabrizio Romano segir að Bayer Leverkusen muni ekki selja Wirtz í sumar en búast megi við stórum tilboðum á næsta ári í þennan dýrmætasta leikmann félagsins.




Stöðutaflan Þýskaland Bundesliga - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Leverkusen 34 28 6 0 89 24 +65 90
2 Stuttgart 34 23 4 7 78 39 +39 73
3 Bayern 34 23 3 8 94 45 +49 72
4 RB Leipzig 34 19 8 7 77 39 +38 65
5 Dortmund 34 18 9 7 68 43 +25 63
6 Eintracht Frankfurt 34 11 14 9 51 50 +1 47
7 Hoffenheim 34 13 7 14 66 66 0 46
8 Heidenheim 34 10 12 12 50 55 -5 42
9 Werder 34 11 9 14 48 54 -6 42
10 Freiburg 34 11 9 14 45 58 -13 42
11 Augsburg 34 10 9 15 50 60 -10 39
12 Wolfsburg 34 10 7 17 41 56 -15 37
13 Mainz 34 7 14 13 39 51 -12 35
14 Gladbach 34 7 13 14 56 67 -11 34
15 Union Berlin 34 9 6 19 33 58 -25 33
16 Bochum 34 7 12 15 42 74 -32 33
17 Köln 34 5 12 17 28 60 -32 27
18 Darmstadt 34 3 8 23 30 86 -56 17
Athugasemdir
banner
banner
banner