Allegri orðaður við Man Utd - Modric að framlengja við Real Madrid
   fös 03. maí 2024 13:25
Fótbolti.net
Pochettino: Þessar heimsku sögusagnir verða að hætta
Mauricio Pochettino.
Mauricio Pochettino.
Mynd: EPA
Mauricio Pochettino stjóri Chelsea segir að „heimskar sögusagnir“ um sína framtíð þurfa að hætta en viðurkennir að hann viti ekki hvort hann verði hjá félaginu á næsta tímabili.

Pochettino gerði tveggja ára samning með möguleika á framlengingu um ár til viðbótar þegar hann var ráðinn í fyrra.

Chelsea hefur hinsvegar sýnt mikinn óstöðugleika á tímabilinu og óvíst hvort liðið nái Evrópusæti. Ensku götublöðin hafa mikið verið að velta framtíð Pochettino fyrir sér og hinir ýmsu menn verið orðaðir við starfið.

„Það er komið nóg af þessum kjaftasögum. Það hefur enginn talað við mig og ég er á samningi áfram, ég geri ráð fyrir að ég verði hérna. Það er komið nóg af heimskum sögusögnum," segir Pochettno.

„Þið verðið að spyrja félagið hvort það vilji halda samstarfinu áfram eða ekki, ekki skrifa hluti sem eru glórulausir."
Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Man City 37 27 7 3 93 33 +60 88
2 Arsenal 37 27 5 5 89 28 +61 86
3 Liverpool 37 23 10 4 84 41 +43 79
4 Aston Villa 37 20 8 9 76 56 +20 68
5 Tottenham 37 19 6 12 71 61 +10 63
6 Chelsea 37 17 9 11 75 62 +13 60
7 Newcastle 37 17 6 14 81 60 +21 57
8 Man Utd 37 17 6 14 55 58 -3 57
9 West Ham 37 14 10 13 59 71 -12 52
10 Brighton 37 12 12 13 55 60 -5 48
11 Bournemouth 37 13 9 15 53 65 -12 48
12 Crystal Palace 37 12 10 15 52 58 -6 46
13 Wolves 37 13 7 17 50 63 -13 46
14 Fulham 37 12 8 17 51 59 -8 44
15 Everton 37 13 9 15 39 49 -10 40
16 Brentford 37 10 9 18 54 61 -7 39
17 Nott. Forest 37 8 9 20 47 66 -19 29
18 Luton 37 6 8 23 50 81 -31 26
19 Burnley 37 5 9 23 40 76 -36 24
20 Sheffield Utd 37 3 7 27 35 101 -66 16
Athugasemdir
banner
banner