Allegri orðaður við Man Utd - Modric að framlengja við Real Madrid
   fös 03. maí 2024 23:04
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Raya búinn að tryggja sér gullhanskann
Mynd: Getty Images
David Raya mun fá gullhanskann eftir tímabilið fyrir að halda oftast hreinu í ensku úrvalsdeildinni.

Raya gekk til liðs við Arsenal frá Brentford á láni í sumar og hefur komið sterkur inn í liðið. Arsenal hefur möguleika á að festa kaup á honum í sumar.

Hann hefur haldið 14 sinnum hreinu á tímabilinu en eftir að Jordan Pickford fékk á sig mark þegar Elijah Adebayo skoraði fyrir Luton gegn Everton í kvöld getur enski markvörðurinn aðeins jafnað Raya.

Það er því ljóst að Raya mun fá gullhanskann en hann þarf að fá á sig mark í öllum þremur leikjunum sem hann á eftir á meðan Pickford heldur hreinu í þeim tveimur sem hann á eftir til að þeir deili gullhanskanum í lok tímabilsins.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner