Allegri orðaður við Man Utd - Modric að framlengja við Real Madrid
   fös 03. maí 2024 18:52
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Sveindís Jane mætt aftur - Öruggur sigur hjá Wolfsburg
Mynd: Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir

Sveindís Jane Jónsdóttir snéri aftur út á fótboltavöllinn í kvöld eftir tæplega mánaðar fjarveru.


Sveindís meiddist á öxl í leik íslenska landsliðsins gegn Þýskalandi í undankeppni EM í síðasta mánuði. Í fyrstu var óttast um að meiðslin væru alvarlega en hún reif tvö liðbönd.

Hún er nú mætt aftur til leiks eftir tæpan mánuð á meiðslalistanum. Hún kom inn á sem varamaður og spilaði rúmlega hálftíma þegar Wolfsburg vann öruggan 5-1 sigur gegn Köln.

Wolfsburg heldur í veika von um að verða þýskur meistari en liðið er í 2. sæit með 47 stig þegar tvær umferðir eru eftir en Bayern er á toppnum með 51 stig og á leik til góða.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner