Allegri orðaður við Man Utd - Modric að framlengja við Real Madrid
   fös 03. maí 2024 18:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Ten Hag staðfesti áhuga Man Utd á De Jong
Mynd: EPA

Frenkie de Jong hefur mikið verið orðaður við Manchester United undanfarin ár en hann er enn hjá Barcelona.


Erik ten Hag stjóri Man Utd sagði frá því í viðtali hjá Gary Neville á Sky Sports að hann hafi viljað fá De Jong til félagsins árið 2022.

„Þá hefðu Frenkie de Jong og Casemiro verið saman á miðjunni. Þeir hefðu náð saman. Ef maður vill spila eins og Ajax er hann hárrétti leikmaðurinn," sagði Ten Hag.

„Undanfarin ár höfum við ekki getað fengið alla þá leikmenn sem við vildum, maður verður að sætta sig við það."


Athugasemdir
banner
banner