Allegri orðaður við Man Utd - Modric að framlengja við Real Madrid
banner
   fös 03. maí 2024 17:30
Elvar Geir Magnússon
Vonast til þess að Trippier spili aftur áður en tímabilinu lýkur
Trippier verður ekki með gegn Burnley.
Trippier verður ekki með gegn Burnley.
Mynd: EPA
Newcastle, sem er í sjöunda sæti ensku úrvalsdeildarinnar, heimsækir Burnley, sem er í fallsæti, á morgun klukkan 14. Eddie Howe stjóri Newcastle fór yfir stöðuna á sínum leikmannahópi á fréttamannafundi í morgun.

Hann segist efast um að miðvörðurinn Fabian Schar spil aftur á þessu tímabili en Miguel Almiron, Joelinton og Nick Pope eru allir mættir aftur til æfinga og verði skoðaðir fyrir leikinn.

„Þetta eru þrír reynslumiklir leikmenn sem eru að taka fyrstu skrefin í endurkomunni og það lyftir öllum hópnum. Ég þarf að taka ákvarðanir sem hagnast þeim best og liðinu. Þetta eru allt mismunandi meiðsli en við þurfum að taka réttar ákvarðanir í svona málum," segir Howe.

Kieran Trippier hefur ekki æft með liðsfélögum sínum í þessri viku og missir af leiknum gegn Burnley á morgun.

„Hann hefur verið að æfa einn eða með sjúkraþjálfurum. Vonandi snýr hann aftur á æfingar hjá okkur í næstu viku. Ég vona að hann muni spila áður en tímabilinu lýkur."

„Við erum þunnskipaðir í miðvarðastöðunum með Jamaal Lascelles, Sven Botman og Fabian Schar frá. En Emil Krafth hefur leyst þessa stöðu vel og ég efast ekki um hæfileika hans," segir Howe.
Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Man City 37 27 7 3 93 33 +60 88
2 Arsenal 37 27 5 5 89 28 +61 86
3 Liverpool 37 23 10 4 84 41 +43 79
4 Aston Villa 37 20 8 9 76 56 +20 68
5 Tottenham 37 19 6 12 71 61 +10 63
6 Chelsea 37 17 9 11 75 62 +13 60
7 Newcastle 37 17 6 14 81 60 +21 57
8 Man Utd 37 17 6 14 55 58 -3 57
9 West Ham 37 14 10 13 59 71 -12 52
10 Brighton 37 12 12 13 55 60 -5 48
11 Bournemouth 37 13 9 15 53 65 -12 48
12 Crystal Palace 37 12 10 15 52 58 -6 46
13 Wolves 37 13 7 17 50 63 -13 46
14 Fulham 37 12 8 17 51 59 -8 44
15 Everton 37 13 9 15 39 49 -10 40
16 Brentford 37 10 9 18 54 61 -7 39
17 Nott. Forest 37 8 9 20 47 66 -19 29
18 Luton 37 6 8 23 50 81 -31 26
19 Burnley 37 5 9 23 40 76 -36 24
20 Sheffield Utd 37 3 7 27 35 101 -66 16
Athugasemdir
banner
banner
banner