Allegri orðaður við Man Utd - Modric að framlengja við Real Madrid
   lau 04. maí 2024 18:18
Brynjar Ingi Erluson
2. deild kvenna: Skoraði þrennu í fyrsta deildarleiknum
Alice Elizabeth Walker skoraði þrennu í fyrsta deildarleik
Alice Elizabeth Walker skoraði þrennu í fyrsta deildarleik
Mynd: KR
KR 4 - 0 Vestri
1-0 Alice Elizabeth Walker ('18 )
2-0 Ólöf Freyja Þorvaldsdóttir ('25 )
3-0 Alice Elizabeth Walker ('26 )
4-0 Alice Elizabeth Walker ('57 )

KR-ingar gátu ekki beðið um betri byrjun í 2. deild kvenna í dag en liðið vann öruggan 4-0 sigur á Vestra á KR-vellinum.

Hin bandaríska Alice Elizabeth Walker samdi við KR-inga um miðjan síðasta mánuð og á hún eftir að reynast liðinu vel en hún skoraði þrennu í fyrsta deildarleik sínum.

Hún kom KR á bragðið á 18. mínútu áður en Ólöf Freyja Þorvaldsdóttir bætti við öðru sjö mínútum síðar.

Walker skoraði annað mark sitt á 26. mínútu og gerði síðan út um leikinn á 57. mínútu. Þrennan fullkomnuð.

Glæsileg byrjun hjá KR sem er nýliði í deildinni eftir að hafa fallið úr Lengjudeildinni á síðasta ári.
Athugasemdir
banner
banner
banner