Allegri orðaður við Man Utd - Modric að framlengja við Real Madrid
banner
   lau 04. maí 2024 13:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Byrjunarlið FH og Vestra: Tilneyddir til að gera tvær breytingar
Grétar Snær Gunnarsson.
Grétar Snær Gunnarsson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Eiður Aron meiddist illa í síðasta leik.
Eiður Aron meiddist illa í síðasta leik.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
FH og Vestri eigast við í Kaplakrika núna klukkan 14:00 en byrjunarliðin eru klár fyrir þennan áhugaverða leik.

FH sótti sigur á Akranes í síðasta leik sínum en Heimir Guðjónsson gerir eina breytingu á sínu liði. Ísak Óli ÓLafsson er í leikbanni og kemur Grétar Snær Gunnarsson inn fyrir hann.

Vestri vann flottan sigur á HK í síðustu umferð en Davíð Smári Lamude, þjálfari liðsins, gerir tvær breytingar á milli leikja. Elvar Baldvinsson og Silas Songani koma inn fyrir Johannes Selven og Eið Aron Sigurbjörnsson. Sá síðarnefndi meiddist illa gegn HK og verður frá næstu þrjá mánuðina.

Lestu um leikinn: FH 3 -  2 Vestri

Byrjunarlið FH:
1. Sindri Kristinn Ólafsson (m)
6. Grétar Snær Gunnarsson
7. Kjartan Kári Halldórsson
8. Finnur Orri Margeirsson
9. Sigurður Bjartur Hallsson
10. Björn Daníel Sverrisson (f)
21. Böðvar Böðvarsson
22. Ástbjörn Þórðarson
25. Dusan Brkovic
33. Úlfur Ágúst Björnsson
34. Logi Hrafn Róbertsson

Byrjunarlið Vestra:
30. William Eskelinen (m)
3. Elvar Baldvinsson
4. Fatai Gbadamosi
6. Ibrahima Balde
9. Andri Rúnar Bjarnason
11. Benedikt V. Warén
17. Gunnar Jónas Hauksson
20. Jeppe Gertsen
21. Tarik Ibrahimagic
22. Elmar Atli Garðarsson (f)
23. Silas Songani
Athugasemdir
banner
banner
banner