Allegri orðaður við Man Utd - Modric að framlengja við Real Madrid
banner
   lau 04. maí 2024 05:55
Jóhann Þór Hólmgrímsson
England í dag - Burnley getur komist upp úr fallsæti
Burnley gæti komist upp úr fallsæti
Burnley gæti komist upp úr fallsæti
Mynd: Getty Images

Lokaspretturinn í ensku úrvalsdeildinni er hafinn og línur eru svo sannarlega farnar að skýrast.


Arsenal er á toppnum, aðeins stigi á undan Man City sem á leik til góða. Arsenal fær Bournemouth í heimsókn í hádeginu. Man City fær Wolves í heimsókn í lokaleik dagsins.

Jóhann Berg Guðmundsson og félagar í Burnley berjast fyrir sæti sínu í deildinni en þeir fá Newcastle í heimsókn sem er í harðri Evrópubaráttu. Burnley getur komist upp úr fallsæti með sigri.

Nottingham Forest getur náð fimm stiga forystu á Burnley í fallbaráttunni með sigri á Sheffield United. Þá mætast Brenford og Fulham.

ENGLAND: Premier League
11:30 Arsenal - Bournemouth
14:00 Burnley - Newcastle
14:00 Sheffield Utd - Nott. Forest
14:00 Brentford - Fulham
16:30 Man City - Wolves


Athugasemdir
banner
banner
banner