Allegri orðaður við Man Utd - Modric að framlengja við Real Madrid
   lau 04. maí 2024 20:27
Brynjar Ingi Erluson
Fjórða þrenna tímabilsins hjá Ronaldo - Nálgast markametið
Mynd: Getty Images
Cristiano Ronaldo skoraði fjórðu þrennuna á tímabilinu er Al-Nassr kjöldró Al Wehda, 6-0, í Riyadh í kvöld.

Fyrsta markið gerði hann eftir mistök markvarðarins, sem sendi boltann beint á hann. Ronaldo tók við boltanum, rakti hann áleiðis að marki og setti hann síðan neðst í hægra hornið.

Nokkrum mínútum síðar gerði hann annað markið með skalla eftir fyrirgjöf Marcelo Brozovic.

Otavio og Sadio Mané gerðu þriðja og fjórða mark Al-Nassr áður en Ronaldo fullkomnaði þrennuna með skoti af stuttu færi í nærhornið.

Hann var að skora fjórðu þrennuna í deildinni á þessari leiktíð og er nú kominn með 32 mörk. Ronaldo er tveimur mörkum frá því að jafna markametið í deildinni.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner