Allegri orðaður við Man Utd - Modric að framlengja við Real Madrid
   lau 04. maí 2024 16:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Sheffield United bætti met sem enginn vill eiga
Mynd: EPA

Sheffield United spilar í Championship deildinni á næstu leiktíð en það varð ljóst eftir síðustu umferð.


Liðið tapaði 3-1 gegn Nottingham Forest í dag sem svo gott sem tryggði Forest áframhaldandi veru í úrvalsdeildinni á næstu leiktíð.

Þriðja mark Forest í leiknum var sögulegt en það var hundraðasta markið sem Sheffield fær á sig í deildinni á þessari leiktíð.

Ekkert lið hefur fengið á sig hundrað mörk í 38 leikjum en Swindon fékk á sig 100 mörk tímabilið 1993/94 en þá voru 42 leikir í deildinni.


Athugasemdir
banner
banner
banner