Allegri orðaður við Man Utd - Modric að framlengja við Real Madrid
Maggi: Stoltur af því hvernig við tækluðum þennan leik
Rúnar Kristins: Vinnum ekki fleiri leiki ef við spilum svona
Addi Grétars um dómsmálið við KA: Ég vona bara að menn láti hér við sitja
Ekkert helgarfrí í fyrsta sinn á árinu - „Verðum þar í hádeginu stelpur“
Adam Páls: Ég er Valsari dauðans
Brynjar Björn ánægður með frammistöðuna: Breytir því ekki að við dettum út úr bikarnum
Mörkin gáfu þeim sjálfstraust - „Við ætluðum að keyra meira á þá“
Pirraður Gregg Ryder: Það þurfa 11 leikmenn að stíga upp
Ari hefur aldrei tapað bikarleik: Erum með sigurvegara í þessu liði
Rúnar Páll: Þetta var kærkomið
Besta frammistaða sumarsins - „Það skellihlógu allir“
Arnar hatar þessa leiki: Ef ég vissi svarið þá væri ég milljarðamæringur
„Þurftum að fá svör og láta þá spreyta sig á móti góðu liði og ákváðum að nota bikarinn í það."
Jón Þór: Færum þeim það upp í hendurnar
Haraldur Freyr: Ég var aldrei rólegur
„Æðislegt að vera kominn heim og æðislegt að fá traustið"
Stigið upp eftir lélegt tímabil í fyrra - „Mig langaði að spila í efstu deild"
Davíð Smári: Hefði kannski átt að sleppa því að tala um það
Gunnar stoltur þrátt fyrir tap: Að spila gegn besta liði landsins
Haddi: Frábært hversu fljótt hann er kominn inn í þetta
banner
   fös 03. maí 2024 21:48
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Árni Freyr hæstánægður eftir sigur ÍR - „Vona að þeir bæti í"
Lengjudeildin
Árni Freyr
Árni Freyr
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

„Mjög sætt, fyrsti leikur á móti liði sem var spáð ofarlega og féll í fyrra, virkilega vel gert hjá strákunum," sagði Árni Freyr Guðnason þjálfari ÍR eftir sigur liðsins gegn Keflavík í fyrstu umferð Lengjudeildarinnar í kvöld.


Lestu um leikinn: Keflavík 1 -  2 ÍR

„Mér fannst þeir öflugir. Þeir eru með marga góða leikmenn, heilt yfir gott lið en held að við séum góðir líka," sagði Árni.

Vilhelm Þráinn Sigurðarson átti frábæran leik á milli stanganna hjá ÍR í kvöld.

„Villi var flottur í dag. Hann er búinn að standa sig vel hjá okkur. Hann spilaði hjá okkur í fyrra og er markmaður númer eitt og er bara hrikalega góður," sagði Árni.

Stuðningsmenn ÍR fjölmenntu til Keflavíkur og létu vel í sér heyra.

„Þetta eru alvöru menn, Gettóhuligans, þeir eru til í allskonar stemningu. VIð erum ekki á heimavelli en stuðningurinn var eins og við værum á heimavelli. Það hjálpaði okkur gríðarlega mikið og ég vona að þeir bæti í," sagði Árni.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner