Enzo Fernandez hefur gengist undir aðgerð vegna meiðsla í nára.
Hann hefur verið að kljást við nárameiðsli á þessari leiktíð og var tekin ákvörðun um að hann þyrfti að fara í aðgerð. Útlit er fyrir að hann muni missa af restinni af tímabilinu.
Hann stefnir á að vera klár fyrir Copa America með argentíska landsliðinu sem hefst í lok júní.
Hann hefur skorað sjö mörk og lagt upp þrjú fyrir Chelsea á þessari leiktíð í öllum keppnum.
Athugasemdir